Emúi gengur laus

Emúar geta ekki flogið og eru ekki sérstaklega góð gæludýr. stækka

Emúar geta ekki flogið og eru ekki sérstaklega góð gæludýr. Af vef Wikipedia

Emúi gengur laus í Vermont í Bandaríkjunum. Fuglinn slapp af sveitabýli fyrir fimm vikum en hann þykir sérlega bragðvís og viðskotaillur. Síðast sást til hans á föstudaginn er hann gekk í rólegheitum fram hjá skrifstofu skólastjórans í smábænum South Hero.

Emúinn, sem er líkur strúti en þó nokkru minni, er um 68 kíló af þyngd og getur ekki flogið. Þótt emúinn eigi það til að gera sig líklegan til að skeyta skapi sínu á fólki hafa íbúar í bæjunum á því svæði sem hann gengur laus á gaman af honum.

Eigandi emúans segist hafa keypt þrjá slíka handa barnabörnunum. Hann segir þá ekki góð gæludýr.

Í auglýsingu eigandans í bæjarblaðinu segir: „Emúi gengur laus. Þú mátt eiga hann ef þú nærð honum.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is