Flækingshundur stöðvar fangelsisflótta
Flækingshundur í Paragvæ kom í veg fyrir að þremur hættulegum glæpamönnum tækist að flýja fangelsi. Mennirnir höfðu grafið átta metra löng göng út úr fangelsinu en mættu svo geltandi flækingshundi handan fangelsismúranna.
Yfirvöld í Paragvæ segja að fangarnir þrír séu mjög hættulegir. Þeir voru í þann veginn að komast út á götu handan fangelsismúranna þegar hundurinn hóf að gelta og gerði þar með fangavörðum viðvart um flóttann.
„Út af þessum flækingshundi tókst okkur ekki að sleppa,“ segir Hilario Villalba sem afplánar 30 ára fangelsisdóm vegna tveggja morða. „Þegar ég kom út að götunni og rak höfuðið upp úr göngunum byrjaði þessi heimski hundur að gelta og vakti athygli varðanna.“
Villalba segist ætla að reyna aftur að flýja fangelsið því hann telji dóminn yfir sér mjög óréttlátan.
Og fleiri hundar hafa komist í heimsfréttirnar síðustu daga fyrir hetjulega framgöngu. Í Argentínu varð labradorinn Tiza til þess að stöðva smygl á miklu magni peningaseðla til Paragvæ á föstudaginn. Ökumaður bílsins sem flutti peningana neitaði að hafa óhreint mjöl í pokahorninu en Tiza var ekki á sama máli og þefaði uppi seðlana sem voru faldir á mörgum stöðum í bílnum.









