Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 19.2.2012
| 10:43
| Uppfært
12:10
Með fimm hreindýr í Subaru
Vegaeftirlitsmenn ráku upp stór augu þegar þeir stöðvuðu Subaru Forester-bíl í Finnmörk í vikunni. Inni í bílnum voru fimm hreindýr.
Ökumaðurinn var að flytja hreindýrin um 100 kílómetra leið. Hann hafði áður en hann lagði af stað leitað sér upplýsinga um hvort einhverjar reglur kvæðu á um að hann mætti ekki flytja dýrin með þessum hætti. Hann fékk það svar að þetta væri ekki ólöglegt.
Þeir sem stöðvuðu bílinn tóku mynd af hreindýrunum en leyfðu manninum síðan að halda áfram ferð sinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









