|
Monitor
| Cover Media
| 20.2.2012
| 23:25
David Beckham elskar bleiur
David Beckham viðurkennir að það að eignast dóttur sé nýstárleg upplifun.
David og tískudívan Victoria Beckham eiga saman synina Brooklyn, 12 ára, Romeo, níu ára, og Cruz, sex ára, og svo hina sjö mánaða gömlu Harper Seven.
OK!-tímaritið segir frá því að David sé sáttur við hvernig fjölskyldulífið hefur breyst síðan Harper kom í heiminn í júlí síðastliðnum.
„Augljóslega er þetta æðislegt,“ sagið David. „Þetta er alveg nýtt fyrir okkur þar sem við eigum þrjá syni fyrir. Það að fá litla stúlku í fjölskylduna er stórkostlegt. Hún er stórkostleg.“
Þar sem synir knattspyrnukappans hafa stækkað ört finnst David frábært að eyða tíma með dóttur sinni.
„Ég skipti enn um bleiur og ég er enn í skýjunum yfir því að hafa eignast litla dóttur. Þetta er mjög góð tilfinning. Ég á fjögur börn núna. Ég elska að skipta á þessari litlu, það er ein af mínum ástríðum.“
David og Victoria búa í Los Angeles með börnum sínum en hinn sparkvissi Beckham framlengdi nýverið samning sinn við knattspyrnuliðið LA Galaxy til tveggja ára.









