Dýrkeypt þvaglát þjófs
Maður nokkur hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi í Englandi eftir að hafa reynt að stela stáli úr rafstöð við járnbrautastöð í Leicester. Rafstöðin sprakk í loft upp þegar þjófurinn kastaði af sér þvagi á spennubreyti.
Þetta kemur fram á vef The Daily Telegraph.
Þjófurinn, sem er 36 ára, hlaut alvarlega og varanlega áverka við sprenginguna, sem varð til þess að eldur kviknaði í olíu sem var á fötum hans. Þvaglátið var þó ekki einungis honum sjálfum dýrkeypt heldur urðu um 2.000 heimili og fyrirtæki rafmagnslaus um tíma í kjölfarið og var tjónið talið nema 26.500 sterlingspundum.
Félagi hans skildi hann liggjandi eftir og reyndi að aka af vettvangi en lögregla hafði upp á honum skömmu síðar. Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi.
Dómari sagði við þjófinn við réttarhöld að hann virtist nú þegar hafa tekið út refsingu. „Þú slasaðist alvarlega, lést næstum lífið og ert varanlega slasaður og afmyndaður.“
Í máli saksóknara kom jafnframt fram að þjófarnir hefðu viðurkennt við yfirheyrslu að sprengingin hefði orðið þegar annar þeirra hefði haft þvaglát á spennubreyti.









