Erfitt líf útivinnandi móður
Það er greinilega ekki alltaf tekið út með sældinni að vera Viktoría Beckham. Tískugyðjan vinnur langan vinnudag, er sífellt á ferð og flugi og er í ofanálag fjögurra barna móðir. Þetta tekur sinn toll og hefur Beckham undanfarna daga mátt þola óvenjuharða gagnrýni breskra fjölmiðla sem segja hana föla, vannærða og skapstirða.
Beckham finnst nú nóg komið og biður um skilning, hún sé eins og hver önnur útivinnandi fjögurra barna móðir, oft þreytt. Í viðtali við dagblaðið Mirror kveðst hún vel geta viðurkennt það að hún sé uppgefin. En hún sé ánægð í vinnunni og mjög hamingjusöm í sínu einkalífi.
„Það er ekkert öðruvísi með mig en allar aðrar konur sem eiga mörg börn og vinna utan heimilisins,“ segir hún. „Þetta er erfitt og ég verð oft þreytt. Vinnan krefst ferðalaga og ég sit oft langt fram á nótt og funda í gegnum skype með samstarfsfólki mínu í London.“
Tískudrottningin kvartar í viðtalinu undan svefnskorti, bæði vegna tímamismunar á milli Bandaríkjanna og Bretlands þar sem hún rekur hönnunarfyrirtæki sitt og vegna þess að yngsta dóttirin Harper Seven, sem er aðeins sjö mánaða, sé ekki enn farin að sofa alla nóttina.
„Ég fæ alls ekki nægan svefn því Harper vaknar svo oft upp á nóttunni. Ég er að reyna að sinna vinnu og barnauppeldi eins vel og ég get og þarf svo að sitja undir gagnrýni um að ég líti ekki nógu vel út. Gæti ég fengið frið?“ spyr Beckham.









