Komin aftur niður á jörðina
Emma Watson skaust kornung upp á stjörnuhimininn í hlutverki Hermione Granger í myndunum geysivinsælu um Harry Potter, byggðum á metsölubókum JK Rowling. Frægðin varð þess valdandi að hún missti tengslin við raunveruleikann og lifði í sínum eigin verndaða heimi. Hún er nú aftur komin niður á jörðina og bæði búin að læra að elda og kveikja á þvottavélinni.
Leikkonan, sem er 21 árs og leggur nú stund á enskar bókmenntir við Oxford-háskóla, hefur viðurkennt að hafa átt erfitt með að fóta sig eftir að tökum á síðustu myndinni um Harry Potter lauk.
Í viðtali við breska dagblaðið Independent segir hún að það hafi reynst áskorðun að venjast venjulegu lífi, án þess að vera stöðugt á ferð og flugi og í kastljósi fjölmiðla. „Ég hef vanist breytingunni smátt og smátt og unnið litla sigra. Núna kann ég til dæmis bæði að elda og þvo minn eigin þvott,“ segir Watson í blaðinu.









