Ákveðin í að skilja

Mynd 1 af 2
Heidi Klum lítur stórkostlega vel út þrátt fyrir að standa á erfiðum tímamótum. Evan Agostini

Heidi Klum virðist ákveðin í að skilja við eiginmann sinn til sjö ára, tónlistarmanninn Seal. Parið tilkynnti um endalok hjónabandsins í síðasta mánuði en hvorugt hefur enn sótt um skilnað. Seal sagðist ætla að ganga áfram með giftingarhringinn en hefur nú tekið hann niður og virðist stefna í að þau stígi skrefið til fulls og óski eftir að hjónaband þeirra verði leyst upp.

Klum og Seal voru aðskilin á Valentínusardag í fyrsta sinn í mörg ár. Klum og börnin fjögur eyddu deginum í Los Angeles með vinum en Seal er staddur í Ástralíu við upptökur á hæfileikaþættinum Voice. Samkvæmt heimildamanni tímaritsins People var bjart yfir Klum sem virtist njóta þess að vera ein með börnunum og með fyrrverandi eiginmanninn víðsfjarri.

Seal og Klum búa enn undir sama þaki á heimili sínu í Los Angeles en halda samskiptunum að sögn í algjöru lágmarki. Finnst Klum auðveldara að hafa þann háttinn á, það minnki álagið og spennuna og auðveldi henni að taka næstu skref.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is