Kynntist nýrri í jógatíma
Russell Brand hefur ekki setið aðgerðarlaus síðan hann óskaði eftir skilnaði við söngkonuna Katy Perry í lok síðasta árs. Gamanleikarinn hefur notið ljúfa lífsins og undanfarið hefur hann sést í fylgd dökkhærðrar fegurðardísar, Orielu Medellin Amieiro, sem hann kynntist ekki á næturklúbbi heldur í jógatíma.
Brand hefur undanfarið sótt jóga í leit að innri friði og þar kynntist hann Amieiro sem er listakona, að því er haft er eftir heimildamanni breska blaðsins Sun. Hefur sést til þeirra saman undanfarið á götum Los Angeles, meðal annars úti að borða, og fór greinilega vel á með þeim.
Amieiro er ekki jafnvön athygli fjölmiðla og Brand og hefur ekkert viljað láta hafa eftir sér um málið en samkvæmt heimildamanni Sun hefur hún þegar eytt að minnsta kosti einni nótt í glæsihúsi hans í Beverly Hills.









