Michelle Williams stressuð á rauða dreglinum

Michelle virðist sallaróleg á þessari mynd en er eflaust stressuð, sbr. viðtal sem birtist við ... stækka

Michelle virðist sallaróleg á þessari mynd en er eflaust stressuð, sbr. viðtal sem birtist við hana í People. GUS RUELAS

Leikkonan Michelle Williams viðurkennir að rauði dregillinn stressi hana upp.

Williams hefur verið tilnefnd til fjölda verðlauna fyrir túlkun sína á Hollywood-goðsögninni Marilyn Monroe í myndinni My Week with Marilyn. Hún var útnefnd besta leikkonan í gaman- eða söngleikjamynd á Golden Globe-hátíðinni í síðasta mánuði og undirbýr sig nú fyrir að mæta á Óskarsverðlaunin um helgina. Hún segist reyna að hugsa jákvætt til að ráða við rauða dregilinn.

„Vinur minn sagði mér að hugsa um þetta allt sem ást,“ segir Williams í samtali við People-tímaritið. „Jafnvel þótt ég verði stressuð þá er þetta bara heimurinn að senda mér ást.“

Hún lagði mikla vinnu í Marilyn Monroe-hlutverkið og er hún því himinlifandi yfir viðbrögðunum sem hún hefur fengið.

„Ég æfði allt í sambandi við hana,“ útskýrir Williams. „Þetta hélt mér vakandi á nóttunni. Ég vildi bara ná þessu rétt. Í hvert sinn sem einhver segir eitthvað fallegt um myndina núna þá hugsa ég: „Kannski tókst okkur ágætlega til!““

Michelle Williams er tilnefnd sem besta leikkonan á Óskarsverðlaunahátíðinni í ár. Í viðtalinu hrósar hún þó leikkonunni Melissu McCarty sérstaklega, en sú er tilnefnd sem besta leikkonan í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í Bridesmaids. „Frammistaða Melissu heillaði mig upp úr skónum. Ég gat ekki einu sinni hlegið af því að mig langaði ekki að missa af neinu.“ 

Óskarsverðlaunin fara fram sunnudaginn 26. febrúar í Kodak Theatre.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is