Veröld/Fólk
| mbl
| 20.2.2012
| 13:08
| Uppfært
14:14
Sheen skammaður
Framleiðandi sjónvarsþáttanna Two and a Half Men hefur bannað leikaranum Charlie Sheen að nota myndir úr þáttunum til að auglýsa nýja sjónvarpsþáttinn sinn, sem heitir Anger Management. Verði Sheen ekki við tilmælunum má hann eiga von á málsókn.
Warner Bros, sem framleiðir Two and a Half Men, hefur lýst furðu sinni á því hvernig Sheen detti í hug að nota atriði úr þáttum sem hann var rekinn úr til að auglýsa nýja þáttinn sinn.
Anger Management eru byggðir á samnefndri kvikmynd frá árinu 2003 og þar fer Sheen með hlutverk sálfræðings, sem ekki notar algengar aðferðir í vinnu sinni. Þættirnir verða frumsýndir í Bandaríkjunum í sumar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









