Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| AFP
| 20.2.2012
| 18:00
„Versta verk Klimt“
Listasafn í Vín í Austurríki hefur valið óvanalega leið til þess að fagna því að 150 ár eru liðin frá fæðingu listamannsins Gustav Klimt með því að leita að „versta“ verki Klimts.
Safnið býður fólki að skrifa athugasemdir á Facebook-síðu safnsins um hvað það telji skelfilegasta verk listamannsins. Eins bestu verk hans. Þegar hafa verið settar inn athugasemdir um verk eftir hann og jafnvel frægustu verk hans.
Samkvæmt upplýsingum frá safninu verða bestu eða verstu myndir Klimts sýndar á sýningu sem hefst þann 16. maí nk.
Klimt hefur löngum verið talinn í hópi fremstu listamanna en hann lést árið 1918.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









