Afþreying í vetrarfríi
Dagana 23. og 24. febrúar verður vetrarfrí í flestum grunnskólum Reykjavíkur. Frístundamiðstöðvar, félagsmiðstöðvar og sundlaugar Reykjavíkurborgar bjóða upp á fjölmarga viðburði í vetrarfríinu, samkvæmt frétt á vef Reykjavíkurborgar.
Í Hlöðunni við frístundamiðstöðina Gufunesbæ í Grafarvogi verður efnt til skákmóts fimmtudaginn 23. febrúar og Hlöðubingós föstudaginn 24. febrúar. Báðir viðburðir hefjast kl. 12:30 og eru ætlaðir fólki á öllum aldri.
Í miðborginni efnir frístundamiðstöðin Kampur til fjölskylduhátíðar við Barónsstíg fimmtudaginn 23. febrúar undir yfirskriftinni Leikstræti – lokað fyrir umferð opnað fyrir leik.
Kampsráð unglinga í 8.-10. bekkjum Austurbæjar-, Háteigs- og Hlíðaskóla kemur að skipulagi Leikstrætis og tekur þátt í umsjón viðburðarins sem hefst kl. 14:00. Dótakassinn verður opinn, flugdrekar settir á loft, gatan skreytt með krít og tombólur haldnar til styrktar UNICEF. Þá býður Sundhöllin gestum Leikstrætis frítt í sund frá kl. 14:00-16:00.
Í Vesturbæjarlaug verður efnt til fjölskylduleikja föstudaginn 24. febrúar kl. 14:30-16:30. Þetta eru leikirnir Wipeout og Minute to win it. Félagsmiðstöðin Frosti býður upp á vöfflur meðan birgðir endast. Að auki stendur frístundamiðstöðin Frostaskjól fyrir ýmsum viðburðum fyrir unglinga í vetrarfríinu og öskudagsballi fyrir 5.-7. bekk fimmtudaginn 23. febrúar kl. 16:30-19:30, segir á vef Reykjavíkurborgar en frístundaheimili verða lokuð í borginni í vetrarfríinu.
Bláfjöllin skarta nú sínu fegursta. Þar er nægur snjór og lyftur opnar ef veður leyfir. Því væri alveg tilvalið að skella sér á skíði í vetrarfríinu.
Sjá nánar á heimasíðunni www.skidasvaedi.is
Benda má á skemmtilega afþreyingarkosti í hverfum borgarinnar á „Ævintýri á heimaslóðum“ þar sem búið er að kortleggja hverfin og safna saman fjölmörgum hugmyndum og tillögum að því sem hægt er að gera, s.s. á útivistarsvæðum og söfnum.
Þá verða sundlaugar borgarinnar opnar eins og venjulega þar sem hægt er að eiga gæðastundir.









