|
Monitor
| mbl
| 21.2.2012
| 23:50
| Uppfært
22.2.2012
0:19
Drew Barrymore ólétt?
Orðrómur hefur kviknað í kringum Drew Barrymore þess efnis að hún eigi nú von á sínu fyrsta barni.
Leikkonan sást yfirgefa læknastofu í Beverly Hills með unnusta sínum, Will Kopelman, í síðustu viku með eitthvað sem líktist sónarmyndum í fórum sínum.
TMZ greinir frá því að fulltrúi Barrymore hafi ekki viljað segja neitt þegar hann var spurður út í málið en vísaði sögusögnunum í það minnsta ekki á bug.
Barrymore og Kopelman trúlofuðust í desember og heimildamenn segja að hún hafi aldrei verið ánægðari á ævinni. „Það voru strax neistar á milli þeirra,“ sagði heimildamaður í samtali við People. „Þau vissu strax hvað þau vildu.“
Þótt parið sé ekki enn gift hefur Drew aðlagast lífi Kopelmans vel. „Hún er enn Drew en hún hefur róast,“ útskýrði heimildamaðurinn. „Það er eins og þau séu nú þegar gift.“









