Erfitt að kynnast nýjum manni
Courtney Cox og David Arquette skildu í október 2010 eftir 11 ára hjónaband. Arquette er kominn með nýja kærustu, sjónvarpsfréttakonuna Christinu McLarty, en Cox hefur ekki verið bendluð við karlmann frá skilnaðinum og segist í raun ekki vita hvar hún ætti að kynnast nýjum manni.
Leikaraparið fyrrverandi hefur haldið mjög góðu sambandi, ekki síst vegna sjö ára gamallar dóttur sinnar Coco. Cox er afar heimakær og fer sárasjaldan út að skemmta sér og nú er svo komið að fyrrverandi eiginmanninum finnst að hún ætti að drífa sig á stefnumót.
Cox var gestur Anderson Cooper á sjónvarpsstöðinni CNN og þar tjáði hún sig um lífið sem einstæð móðir. „Þetta er ekki auðvelt,“ sagði leikkonan. „David á kærustu og ég samgleðst honum. Mér líður mjög vel en ég er enn ekki komin þangað að langa til að fara á stefnumót.
David segir við mig að ég verði að fara út á meðal fólks og kynnast nýjum manni en ég er heimakær og er ekki mikið fyrir að skemmta mér. Ég veit því satt að segja ekki alveg hvernig mér á að takast að verða ástfangin á nýjan leik.“









