Fótbrotnaði fyrir frumsýningu

Bríet Ósk Kristjánsdóttir í hjólastólnum stækka

Bríet Ósk Kristjánsdóttir í hjólastólnum

Bríet Ósk Kristjánsdóttir, sem leikur eitt aðalhlutverkið í sýningu Verzlunarskóla Íslands, Bugsy Malone, varð fyrir því óhappi að fótbrotna daginn fyrir frumsýningu.

Um 140 nemendur Verzlunarskóla Íslands hafa síðan í lok september undirbúið uppsetningu Bugsy Malone og æft stíft undanfarna fjóra mánuði.

Allt lék í lyndi og virtist allt ætla að smella saman á lokadögunum þegar Bríet Ósk Kristjánsdóttir, sem leikur Siggu sækó (Dandy Dan), fótbrotnaði.

Samkvæmt upplýsingum frá aðstandendum sýningarinnar var of seint að útvega nýjan leikara þannig að Gunnar Helgason, leikstjóri sýningarinnar, brá á það ráð að láta Bríeti Ósk leika í hjólastól.

Bríet Ósk Kristjánsdóttir

Bríet Ósk Kristjánsdóttir Af vef sýningarinnar

Verkið var frumsýnt hinn 1. febrúar og samkvæmt upplýsingum frá leikurum tók hún sig svo vel út í stólnum að Gunnar ákvað að því yrði ekki breytt og hefur hún leikið í stólnum síðan, þó svo hann sé orðinn mesti óþarfi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is