Veröld/Fólk
| mbl
| 21.2.2012
| 19:11
Hertogaynjan stundar listmeðferð
Katrín hertogaynja af Cambridge og eiginkona Vilhjálms Bretaprins heimsótti í dag skóla þar sem listmeðferð er beitt til að hjálpa börnum með hegðunarvandamál. Gerður var góður rómur að heimsókninni og prinsessunni hrósað fyrir „góðan skilning á hinum æðri listum“.
Við grunnskólann Rose Hill í útjaðri Oxford eru börn með sjálfsmyndarvanda og Asperger-heilkenni hvött til að tjá sig með hjálp myndlistar og teikninga. Katrín Middleton heimsótti skólann í dag til að kynna sér starfsemina, sem er meðal þeirrar góðgerðarstarfsemi sem hún hefur valið að styrkja.
Hertogaynjan ræddi bæði við starfsfólk og nemendur og reyndi sig sjálf við listsköpunina.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









