Ingibjörg með þrjár tilnefningar
Myndband Gus Gus er tilnefnt til íslensku tónlistarverðlaunanna sem og plötuumslag nýjustu plötunnar.
Ingibjörg Birgisdóttir er með þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokkunum Bestu plötuumslög og bestu tónlistarmyndbönd ársins. Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu miðvikudaginn 29. febrúar næstkomandi.
Eftirfarandi tónlistarmyndbönd eru tilnefnd:
Retro Stefson - Kimba - Leikstjóri Árni Sveinsson
Gus Gus - Over - Leikstjórar Ellen Lofts og Thorbjörn Ingason
Sóley - Smashed Birds - Leikstjóri Ingibjörg Birgisdóttir
Sin Fang - Two Boys - Leikstjóri Ingibjörg Birgisdóttir
Sin Fang - Slowlights - Leikstjóri Máni M. Sigfússon
Eftirfarandi plötuumslög eru tilnefnd:
Gus Gus - Arabian Horse - Hönnun Paul McMenamin
Sin Fang - Summer Echoes - Hönnuður Ingibjörg Birgisdóttir
hjálmar - Órar - Hönnun Bobby Breiðholt
Sigurrós - Inni - Hönnun Sarah Hopper
Sykur - Mesópótamía - Hönnun Siggi Odds
Þau Dögg Mósesdóttir, Goddur og Arnar Eggert Thoroddsen sátu í sérstakri fagdómnefnd sem tilnefndi plötuumslög og tónlistarmyndbönd ársins 2011.
Á vef mbl.is er hafin kosning á vinsælasta tónlistarflytjanda ársins 2011. Kosningin stendur yfir til miðnættis þriðjudaginn 28. febrúar og alls geta hlustendur valið úr 20 flytjendum.
Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í Hörpu miðvikudaginn 29. febrúar.









