Lætur fjarlægja húðflúrið að börnunum viðstöddum
Mark Wahlberg ætlar að sjá til þess að börnin hans fái sér aldrei húðflúr. Stjarnan úr nýjustu mynd Baltasars Kormáks, Contraband, er með sjö áberandi húðflúr um allan líkamann sem minna hann á liðna tíma, bæði tengda vinnu og einkalífi. Wahlberg vill nú losna við allt líkamsskrautið og til að tryggja að börnin hans feti ekki í fótspor hans og fái sér húðflúr lætur hann fjarlægja það að þeim viðstöddum.
Í viðtali í bandaríska sjónvarpsþættinum Today sagði leikarinn húðflúrið geyma minningar, bæði tengdar kvikmyndaleik og atburðum úr einkalífi. Það væri þó mjög áberandi og afar tímafrekt fyrir förðunarmeistara að hylja það fyrir kvikmyndaupptökur.
„Húðflúrið er algjör hausverkur og það hefur mikil vinna farið í að fela það í gegnum árin,“ sagði leikarinn í sjónvarpsviðtalinu. „Ég er nú búinn að fá nóg af húðflúri og vil losna við það allt. Ég vil ekki að börnin mín fái sér húðflúr og ég tala reglulega um það við þau. Til að sýna þeim fram á hvað það fylgir því mikill sársauki og óþægindi að láta fjarlægja það hef ég leyft elstu börnunum tveimur að koma með mér. Þannig sjá þau svart á hvítu að þetta er ekki þess virði.“
Wahlberg á fjögur börn með eiginkonu sinni Rheu Durham; Ellu Rae átta ára, Michael tæplega sex ára, Brendan Joseph þriggja ára og Grace Margaret tveggja ára. Segir leikarinn aðspurður hlutverk föður og eiginmanns vera þau stærstu og mikilvægustu.









