Veröld/Fólk
| Cover Media
| 21.2.2012
| 12:51
| Uppfært
13:14
Óttast að dóttirin fari sér að voða
Bobby Brown hefur þungar áhyggjur af því að dóttir hans og Whitney Houston heitinnar, Bobbi Kristina, kunni að fara sér að voða. Dóttirin, sem er 18 ára gömul, er niðurbrotin eftir fráfall móður sinnar og hefur auk þess átt við vímuefnavanda að etja. Brown óttast hið versta og hafa vinir hans hvatt hann til að binda enda á tónleikaferðalag sitt.
Brown vill að dóttirin fari í meðferð við áfengis- og eiturlyfjavanda sínum áður en hún skaðar sjálfa sig, er haft eftir heimildamanni RadarOnline. Samstarfsfólk tónlistarmannsins og vinir hafa ráðlagt honum að aflýsa því sem eftir er af tónleikaferðalagi hans til að helga sig dóttur sinni og hjálpa henni í gegnum erfiðleikana.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









