Skartar nýjum hring

Mynd 1 af 2
Jessica Biel. mbl.is/Cover Media

Jessica Biel og Justin Timberlake hófu aftur samband á síðasta ári eftir stutt hlé og um jólin bárust þær fregnir að Timberlake hefði farið á hnén og borið upp bónorðið. Trúlofunin fékkst ekki staðfest og ekkert bólaði á hring á hendi unnustunnar, fyrr en nú.

Biel og Timberlake mættu saman til mikillar veislu í New York á laugardagskvöld þar sem haldið var upp á velgengni hins geysivinsæla sjónvarpsþáttar Saturday Night Live. Ekki fór framhjá viðstöddum að Biel skartaði dýrindis trúlofunarhring og var leikkonan Kristen Bell í hópi þeirra sem véku sér að Biel og dáðust að nýja djásninu, að því er haft er eftir heimildamanni tímaritsins People.

Leikaraparið hóf ástarsamband árið 2007 eftir að Timberlake batt enda á samband sitt og leikkonunnar Cameron Diaz. Þau hættu saman í stuttan tíma á síðasta ári en tóku svo aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið og bar Timberlake að sögn upp bónorðið í fríi í Wyoming skömmu fyrir jól.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is