Skráning hafin í Músíktilraunir

Frá Músíktilraunum. stækka

Frá Músíktilraunum.

Skráning er hafin í tónlistarkeppnina Músíktilraunir 2012 sem fara fram í Austurbæ dagana 23.-31. mars næstkomandi. Músíktilraunir eru opnar fyrir alla á aldrinum 13-25 ára.

Hægt er að skrá sig til leiks  á skráningarsíðu Músíktilrauna 2012. Skráningarsíðan verður opin í tvær vikur eða frá 20. febrúar til 5. mars.

Oft er talað um að Músíktilraunir hafi verið stökkpallur fyrir ungar og óreyndar hljómsveitir út í hinn „harða tónlistarbransa“. Hljómsveitir á borð við Kolrössu Krókríðandi, Botnleðju, Maus, Mínus, Jakobínarínu, Agent Fresco og nú Of Monsters and Men eru ágætis vitnisburður um að ýmis ævintýri taka við að loknum tilraununum.

Margskonar verðlaun eru í boði frá eftirtöldum aðilum: Icelandair, Tónastöðinni, Sundlauginni, 12 tónum, Island Studios, Studio Ljónshjarta, Hljóðfærahúsinu, Gogoyoko, Möller Records, Smekkleysu og Forlaginu.

Nánari upplýsingar á www.musiktilraunir.is.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is