Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi. stækka

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi. AP

Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi.

Á meðan faðirinn var inni í búðinni kom þjófur á hlaupum, stökk inn í bílinn og ók á brott. Lögreglan fann bílinn hálftíma síðar og var þá þjófurinn á bak og burt. Drengurinn var ómeiddur og hafði sofið allan tímann. Faðir drengsins var ákærður fyrir að stofna heilsu barns síns í voða.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is