Þyrlupallur í bakgarðinum
Adele er á skömmum tíma orðin ein af vinsælustu tónlistarmönnum heims. Söngkonan breska, sem er aðeins 23 ára gömul, er bókuð á tónleikum og alls kyns uppákomum langt fram í tímann og þyrfti oft að geta verið á nokkrum stöðum í einu. Til að auðvelda sér lífið ætlar Adele nú að ferðast um í þyrlu og er komin með þyrlupall í bakgarðinn.
Söngkonan tók nýlega á leigu glæsilegt sveitasetur í West Sussex og flutti þangað inn á dögunum ásamt kærastanum, Simon Konecki. Húsið er með tíu svefnherbergjum, tveimur sundlaugum, tennisvelli og tómstundaherbergi og mánaðarleigan er um þrjár milljónir íslenskra króna.
Aðalaðdráttarafl sveitasetursins er þó þyrlupallur í bakagarðinum sem Adele hyggst færa sér í nyt. Með því að hafa þyrluaðstöðu heima verður hún ekki lengur háð bíl, er fljótari á milli áfangastaða og getur varið meiri tíma heima með nýja kærastanum.









