Búinn að skrifa bók um Whitney Houston
Bobby Brown lumar á eigin handriti að bók um fyrrverandi eiginkonu sína, Whitney Houston, sem hann var með tilbúið til útgáfu árið 2008. Útgefendur reyndust ekki nógu spenntir fyrir sögu söngkonunnar þá og því hætti Brown við að gefa hana út. Hann hefur nú tekið málið til endurskoðunar eftir að athygli umheimsins hefur aftur beinst að Houston í kjölfar sviplegs fráfalls hennar.
Samkvæmt heimildamanni Huffington Post er Brown afar féþurfi og sér nú óvænt tækifæri til að græða á dauða Houston með því að gefa út bók um líf hennar og stormasamt hjónaband þeirra. Í bókinni dregur Brown að sögn ekkert undan en mikið gekk á í sambandinu.
Ekki eru allir ánægðir með bókaráform Browns. Haft er eftir vini söngkonunnar í blaðinu að fyrrverandi eiginmaður Houston hugsi ekki um annað en peninga. „Þetta er maðurinn sem yfirgaf jarðarför hennar í fússi af því að hann fékk ekki að sitja þar sem hann vildi,“ segir vinurinn. „Um kvöldið hélt hann tónleika eins og ekkert hefði ískorist. Ekki af því að hann fann sig knúinn til að syngja öll sín bestu lög eða af því að Whitney hefði viljað það, heldur til að græða peninga. Af sömu ástæðu vill hann nú gefa út bók um hana.“









