Lohan þakklát dómaranum
Leikkonan Lindsay Lohan hefur sagt vinum sínum að hún telji að dómarinn Stephanie Sautner hafi bjargað leikferli hennar með því að vera ströng og sýna henni lítið umburðarlyndi.
Samkvæmt slúðursíðunni TMZ var Lohan ekki hrifin af Sautner til að byrja með en hún átti sig nú á því að án hennar ströngu fyrirmæla hefði hún aldrei tekið sig saman í andlitinu. Aðrir dómarar höfðu fyrirskipað Lohan að inna af hendi hundruðir klukkustunda af samfélagsvinnu á innan við ári en Sautner og lögmaður Lohan, Shawn Holley, komust að þeirri niðurstöðu að það væri ekki besta leiðin. Lohan þyrfti meira aðhald og því ætti útdeila henni ákveðnum fjölda klukkutíma af samfélagsvinnu í hverjum mánuði. Í lok hvers mánaðar þyrfti hún síðan að hitta Sautner og sýna fram á að hún hefði innt vinnuna af hendi. Ef ekki þá færi hún beinustu leið í fangelsi.
Þetta virðist hafa borið árangur og Lohan ku nú átta sig á því að eina ástæðan fyrir því að leiklistarferill hennar virðist vera að glæðast á ný er sú að fólk er farið að treysta henni, nokkuð sem það gerði ekki áður. Hefur henni verið boðið að koma fram í Saturday Night Live og leika í kvikmynd um ævi Elizabeth Taylor en síðustu árin hafa atvinnutækifærin verið af skornum skammti.









