Setur Lopez alltaf í fyrsta sæti

Mynd 1 af 2
Jennifer Lopez og Casper Smart. Victor R. Caivano

Casper Smart, kærasti Jennifer Lopez, er harðákveðinn í að láta sambandið við stórstjörnuna endast. Hann er tilbúinn að leggja allt á sig til að halda í Lopez og setur hana því alltaf í fyrsta sætið.

Lopez skildi við Marc Anthony á síðasta ári en ekki leið á löngu þar til hún var byrjuð með dansaranum Smart. Ástarsambandið hefur vakið athygli, ekki síst fyrir þær sakir að Smart er aðeins 24 ára gamall.

Nánir vinir söngkonunnar telja að henni sé full alvara með sambandinu og samkvæmt heimildamanni blaðsins Chicago Sun-Times er sömu sögu að segja um Smart. Hann dýrkar Lopez og ber hana á höndum sér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Grét uppi á sviði

Bobbi Kristina Brown ásamt móður sinni Whitney Houston heitinni.
10:00 Bobbi Kristina minnist móður sinnar Whitney Houston á Billboard-tónlistarverðlaunahátíðinni.  Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

finnur.is