Skrifar sig frá sorginni

Mynd 1 af 2
Katy Perry. mbl.is/Cover Media

Katy Perry varð fyrir miklu áfalli þegar Russell Brand tilkynnti í lok síðasta árs að hann vildi skilja eftir 14 mánaða hjónaband. Perry vinnur nú að gerð nýrrar plötu og finnur huggun og heilun í því að semja angurvær lög um sambandið við fyrrum eiginmanninn.

Söngkonan hefur átt mjög erfitt andlega og er enn mjög miður sín, er haft eftir heimildamanni breska tímaritsins Grazia. „Katy fær útrás með því að semja lög og því hefur vinnan við nýju plötuna reynst henni frábær hjálp til að takast á við vonbrigðin, reiðina og sorgina,“ segir heimildamaður blaðsins.

Perry og Russell undirrituðu skilnaðarpappírana í byrjun febrúar en leikarinn flutti út í desember. Samskipti þeirra voru fyrst í stað á hæfilega vinalegum nótum en síðustu vikur hefur sambandið farið hríðversnandi. Ekki hjálpar til að Brand hefur sést í fylgd dökkhærðrar fegurðardísar, listakonunnar  Orielu Medellin Amieiro, sem hann kynntist í jógatíma.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Mistök að tjá sig um ástamálin

John Mayer.
Í gær, 23:38 John Mayer sér eftir ummælum sínum um Jennifer Aniston og Britney Spears.  Meira »

Laðast að leikkonu

Johnny Depp.
Í gær, 20:44 Johnny Depp á í nánu sambandi við mótleikkonu sína Amber Heard.  Meira »

Stórvarasöm á golfvellinum

Britney Spears.
Í gær, 21:42 Britney Spears æfir sveifluna af kappi þannig að nærstaddir eiga fótum sínum fjör að launa.  Meira »

Taka upp atriði fyrir Star Trek 2 á Íslandi

J. J. Abrams og Chris Pine við tökur á Star Trek árið 2009.
Í gær, 16:02 Staðfest hefur verið að tökulið við Star Trek 2, sem frumsýna á árið 2013, mun koma hingað til lands að taka upp nokkur atriði en um það hafa verið uppi nokkrar getgátur. Star Trek, í leikstjórn J. J. Abrams, naut talsverðra vinsælda þegar hún var sýnd árið 2009. Meira »

finnur.is