Starði á barm prinsessunnar
María Danaprinsessa. Reuters
Eiginmaður forseta Finnlands, Törju Halonen, náðist nýverið á myndband þar sem hann starði á barm Maríu Danaprinsessu, eiginkonu Friðriks, krónprins Danmerkur. Atburðurinn átti sér stað í hátíðarkvöldverði í Amalienborg-höll í Kaupmannahöfn sem Margrét Danadrottning stóð fyrir samkvæmt fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph.
Eiginmaðurinn, Pentti Arajärvi, sat við hlið Maríu og sést á myndbandinu stara á barm hennar á meðan aðrir gestir hlusta á eina af ræðum kvöldsins og þar á meðal hún. Þegar hún tekur eftir þessu lítur hann vandræðalega upp í loftið og læst vera að skoða það. Viðbrögð Maríu eru þau að skýla barmi sínum með hendinni.
Danskir fjölmiðlar hafa talsvert gert sér mat úr þessu atviki samkvæmt fréttinni en tekið er fram að ekki sé líklegt að það leiði til einhverra vandamála í samskiptum Danmerkur og Finnlands.
- Dorrit mætir í skírn sænsku prinsessunnar
- Leikstjórar túlka tónlist Sigur Rósar
- Tekjur Avengers yfir milljarður dala
- Þarf að komast í meðferð
- Gibb „risi í tónlistarheiminum“
- Grét uppi á sviði
- Tólf stunda langur gjörningur sýndur
- Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni
- Sýning á verkum Dieters Roths
- Robin Gibb látinn









