12 mættu á frumsýningu

Mynd 1 af 3
Leikarinn Rade Serbedzija og Angelina Jolie AP

Einungis tólf manns mættu á frumsýningu á kvikmynd Angelinu Jolie, In the Land of Blood and Honey, í Belgrad í Serbíu í kvöld.

Í myndinni er sögð saga bosnískrar konu sem er múslimi og serbnesks manns. Þau eiga í ástarsambandi áður en stríðið brýst út í Bosníu árið 1992 en upp úr sambandinu slitnar fyrir stríðið. Þau hittast síðan á ný þegar hún er tekin til fanga af herdeild Bosníu-Serba sem fyrrverandi elskhugi hennar stýrir.

Þrátt fyrir orðróm þar að lútandi var myndin ekki bönnuð í Serbíu en viðtökurnar í Belgrad eru aðrar en í Sarajevo í Bosníu í síðustu viku er um fimm þúsund manns mættu í veislu við frumsýningu myndarinnar.

Á serbneska fréttavefnum Mondo kemur fram að hluti þeirra tólf sem mættu hafi gengið út af myndinni.

Haft er eftir Mirko Beokovic, sem situr í kvikmyndaakademíunni í Belgrad, að myndin sé hlutdræg þar sem Bosníu-múslimar eru sýndir sem siðfágað fólk en Serbar látnir líta út eins og villimenn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Mistök að tjá sig um ástamálin

John Mayer.
Í gær, 23:38 John Mayer sér eftir ummælum sínum um Jennifer Aniston og Britney Spears.  Meira »

Laðast að leikkonu

Johnny Depp.
Í gær, 20:44 Johnny Depp á í nánu sambandi við mótleikkonu sína Amber Heard.  Meira »

Stórvarasöm á golfvellinum

Britney Spears.
Í gær, 21:42 Britney Spears æfir sveifluna af kappi þannig að nærstaddir eiga fótum sínum fjör að launa.  Meira »

Taka upp atriði fyrir Star Trek 2 á Íslandi

J. J. Abrams og Chris Pine við tökur á Star Trek árið 2009.
Í gær, 16:02 Staðfest hefur verið að tökulið við Star Trek 2, sem frumsýna á árið 2013, mun koma hingað til lands að taka upp nokkur atriði en um það hafa verið uppi nokkrar getgátur. Star Trek, í leikstjórn J. J. Abrams, naut talsverðra vinsælda þegar hún var sýnd árið 2009. Meira »

finnur.is