|
Monitor
| mbl
| 23.2.2012
| 22:00
Adele að trúlofa sig?
Adele langar í svo stóran trúlofunarhring að hægt sé að sjá hann úr geimnum.
Söngkonan sigursæla tók nýlega saman við Simon Konecki og sögur herma að þau hyggist bráðlega trúlofast.
Sést hefur til Adele með stóran hring á baugfingri sem varð til þess að trúlofunarsögusagnirnar fóru af stað. Aðspurð um málið sagði Adele þó að einungis væri um fallegan skartgrip að ræða. Þegar blaðamaður The Mirror spurði hana hvernig trúlofunarhring hún myndi vilja þegar að trúlofun kæmi svaraði hún: „Ég myndi vilja fá hring sem hægt er að sjá utan úr geimnum.“
Talið er að Adele og Simon séu nú þegar byrjuð að skipuleggja brúðkaupsveislu, einungis fyrir fjölskyldu og nána vini, sem á að fara fram í Las Vegas. Sömu heimildir herma að áfangastaður brúðkaupsferðar skötuhjúanna verði Memphis og að því loknu hafi þau í hyggju að halda aðra stóra veislu í Bretlandi.
Eins og alheimur veit fjalla frægustu lög Adele um fyrrverandi kærasta og slæm sambandsslit en þar á meðal er lagið Someone Like You. Það tiltekna lag fjallar um það þegar fyrrverandi kærasti hennar trúlofaðist örskömmu eftir að þau hættu saman.
„Ég samdi það til að láta mér líða betur og ég var að reyna að telja mér trú um að ég myndi kynnast einhverjum nýjum og verða ánægð,“ er haft eftir henni. „Næst þegar ég syng Someone Like You ætla ég að segja: Skiptir engu, ég fann einhvern eins og þig. Endilega gleymdu mér! (e. Nevermind, I found someone like you. Please forget me!)“ sem er að sjálfsögðu vísun í alvörutexta lagsins.









