Veröld/Fólk
| Cover Media
| 23.2.2012
| 18:00
Brosti hringinn þegar hún fékk stjörnuna
Jennifer Aniston hefur eignast sína stjörnu á frægðarstéttinni í Hollywood, Hollywood Walk of Fame. Stjarna leikkonunnar var afhjúpuð við hátíðlega athöfn á miðvikudag fyrir framan West Hollywood-hótelið að viðstöddu fjölmenni. Meðal gesta voru kærastinn, Justin Theroux, og faðir leikkonunnar, John Aniston.
Með stjörnunni er Aniston heiðruð fyrir framlag sitt til sjónvarps- og kvikmyndalistarinnar en hún er einna þekktust fyrir túlkun sína á Rachel Green í gamanþáttaröðinni langlífu Friends.
Í viðtali við Hollywood Reporter kveðst leikkonan ekki sjá fyrir sér að saga vinanna úr sjónvarpsþáttunum vinsælu eigi eftir að rata á hvíta tjaldið. Vinirnir eigi heima í sjónvarpi, heima í stofu hjá fólki, ekki í kvikmyndahúsi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Dorrit mætir í skírn sænsku prinsessunnar
- Leikstjórar túlka tónlist Sigur Rósar
- Tekjur Avengers yfir milljarður dala
- Þarf að komast í meðferð
- Gibb „risi í tónlistarheiminum“
- Grét uppi á sviði
- Tólf stunda langur gjörningur sýndur
- Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni
- Sýning á verkum Dieters Roths
- Robin Gibb látinn









