Lét níu ára dóttur sína keyra

Bandarískur maður sem lét níu ára dóttur sína keyra sig um þar sem hann var undir áhrifum áfengis, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi.

Shawn Weimer játaði sig sekan í desember. Hann var handtekinn í byrjun október sl. eftir að lögregla stöðvaði bíl hans og sá að dóttir hans sat á bak við stýrið. Á myndbandsupptökum úr eftirlitsmyndavél við bensínstöð er hægt að heyra Weimer, sem er 39 ára, gorta sig af því hversu vel stelpan keyrir.

Weimer viðurkenndi að hafa gert mistök þegar hann bað dóttur sína um að keyra, en hann hefði verið að hugsa um þegar hann sjálfur var ungur og var látinn keyra um á bóndbýli foreldra sinna. „Það var bara nokkuð sem ég fékk að prufa þegar ég var krakki og mig langaði að gera með dóttur minni,“ sagði Weimer í viðtali í fyrra. Dóttirin hefði keyrt bílinn á einkavegi í u.þ.b. 45 mínútur áður en þau stöðvuðu bílinn við bensínstöðina. Hann sagði þetta hafa verið í fyrsta skipti sem hann leyfði henni að keyra bílinn.

Í vitnisburði sínum sagði stúlkan að faðir hennar hefði drukkið hálfa flösku af viskí fyrr um kvöldið og að hún hefði samþykkt að keyra en jafnframt verið dálítið hrædd.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
í fyrradag Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is