Ný bók í vændum frá J.K. Rowling

JK Rowling stækka

JK Rowling Reuters

J.K. Rowling, höfundur Harry Potter, er búin að skrifa skáldsögu fyrir fullorðna, sem hún segir að sé mjög ólík fyrri metsölubókum sínum. Útgefendur hennar sögðu frá þessu í dag, og sögðu jafnframt að innan skamms yrði titill bókarinnar og útgáfudagur tilkynntur.

Bókin verður gefin út bæði á prentuðu og rafrænu formi síðar á árinu. „Ég hef virkilega notið þess að skrifa næstu bók mína, en hún verður gjörólík Harry Potter-bókunum,“ sagði Rowling í yfirlýsingu í dag.

Rowling varð tekjuhæsti rithöfundur heims á samningi sínum við Bloomsbury-útgáfufélagið, en hún ákvað að róa á ný mið fyrir „nýtt tímabil á rithöfundarferlinum“ og hefur samið við Little Brown-útgáfuna um nýju bókina. „Velgengni Harrys færði mér frelsi til að prófa mig áfram í nýjar áttir og með því frelsi fannst mér rökrétt framhald að fá mér nýjan útgefanda,“ sagði hún.

Harry Potter-bækurnar hafa selst í yfir 450 milljónum eintaka um allan heim, en sú sjöunda og síðasta í röðinni kom út árið 2007.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Mistök að tjá sig um ástamálin

John Mayer.
Í gær, 23:38 John Mayer sér eftir ummælum sínum um Jennifer Aniston og Britney Spears.  Meira »

Laðast að leikkonu

Johnny Depp.
Í gær, 20:44 Johnny Depp á í nánu sambandi við mótleikkonu sína Amber Heard.  Meira »

Stórvarasöm á golfvellinum

Britney Spears.
Í gær, 21:42 Britney Spears æfir sveifluna af kappi þannig að nærstaddir eiga fótum sínum fjör að launa.  Meira »

Taka upp atriði fyrir Star Trek 2 á Íslandi

J. J. Abrams og Chris Pine við tökur á Star Trek árið 2009.
Í gær, 16:02 Staðfest hefur verið að tökulið við Star Trek 2, sem frumsýna á árið 2013, mun koma hingað til lands að taka upp nokkur atriði en um það hafa verið uppi nokkrar getgátur. Star Trek, í leikstjórn J. J. Abrams, naut talsverðra vinsælda þegar hún var sýnd árið 2009. Meira »

finnur.is