Veröld/Fólk
| mbl
| 23.2.2012
| 9:46
Óttast að Rihanna og Brown taki aftur saman
Chris Brown og Rihanna eru ískyggilega nálægt því að taka aftur saman, að sögn slúðursíðunnar tmz.com en vinir söngkonunnar reyni hvað þeir geti að halda þeim hvort frá öðru.
Samkvæmt heimildamönnum síðunnar er Rihanna enn yfir sig hrifin af Brown, þrátt fyrir að samband þeirra hafi endað fyrir þremur árum þegar hann gekk í skrokk á henni. Væri ekki fyrir fjölmiðla og aðdáendur hennar væri hún fyrir löngu búin að taka við honum aftur. Ku Brown einnig bera sterkar tilfinningar í garð Rihönnu, þrátt fyrir að hann sé í sambandi með fyrirsætunni Karrueche Tran.
Vinir Rihönnu og Brown reyni hinsvegar að gera hvað sem þarf til að koma í veg fyrir að þau taki aftur saman. Undanfarið hafi þau eytt talsverðum tíma saman og lítist vinunum illa á það.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Dorrit mætir í skírn sænsku prinsessunnar
- Leikstjórar túlka tónlist Sigur Rósar
- Tekjur Avengers yfir milljarður dala
- Þarf að komast í meðferð
- Gibb „risi í tónlistarheiminum“
- Grét uppi á sviði
- Tólf stunda langur gjörningur sýndur
- Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni
- Sýning á verkum Dieters Roths
- Robin Gibb látinn









