Svíaprinsessa er fædd

Mynd 1 af 5
Hjónin Viktoría og Daniel. Reuters

Viktoría, krónprinsessa Svía, eignaðist dóttur um klukkan hálf fimm í morgun. Litla stúlkan, sem síðar meir mun sitja á valdastóli í Svíþjóð, fæddist á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og var 51 sentímetrar og tæp 3,3 kíló. Faðirinn, Daníel Westling, segir móður og barni heilsast vel.

„Þetta var mikið álag, það getur jú alltaf eitthvað farið úrskeiðis. En þetta gekk vel,“ sagði faðirinn nýbakaði í samtali við vefsíðu sænska dagblaðsins Dagens Nyheter. 

Hann sagði fjölskylduna ætla að taka það rólega á næstunni og bað fjölmiðla um að taka tillit til þess.

Viktoría kom á sjúkrahúsið skömmu fyrir klukkan eitt í nótt í fylgd sænsku öryggislögreglunnar, Säpo. Hún er á einkastofu á sjúkrahúsinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Mistök að tjá sig um ástamálin

John Mayer.
Í gær, 23:38 John Mayer sér eftir ummælum sínum um Jennifer Aniston og Britney Spears.  Meira »

Laðast að leikkonu

Johnny Depp.
Í gær, 20:44 Johnny Depp á í nánu sambandi við mótleikkonu sína Amber Heard.  Meira »

Stórvarasöm á golfvellinum

Britney Spears.
Í gær, 21:42 Britney Spears æfir sveifluna af kappi þannig að nærstaddir eiga fótum sínum fjör að launa.  Meira »

Taka upp atriði fyrir Star Trek 2 á Íslandi

J. J. Abrams og Chris Pine við tökur á Star Trek árið 2009.
Í gær, 16:02 Staðfest hefur verið að tökulið við Star Trek 2, sem frumsýna á árið 2013, mun koma hingað til lands að taka upp nokkur atriði en um það hafa verið uppi nokkrar getgátur. Star Trek, í leikstjórn J. J. Abrams, naut talsverðra vinsælda þegar hún var sýnd árið 2009. Meira »

finnur.is