Undirbýr mynd um sjálfan sig

Mynd 1 af 3
Elton John. Getty Images

Elton John hefur falið Justin Timberlake það vandasama verkefni að túlka hann sjálfan í sjálfsævisögulegri mynd sem tónlistargoðið er með í smíðum í samvinnu við eiginmann sinn, David Furnish. Leitin að rétta leikstjóranum stendur enn yfir en þeir félagar vilja vanda valið og velta málunum vel fyrir sér. Aðalatriðið er að þeirra sögn að finna rétta leikstjórann sem nær til aðalleikarans, Timberlakes, og öfugt.

„Við leitum nú að leikstjóra en það er mikilvægt að hann hafi sömu sýn á myndina og við Elton,“ segir Furnish í samtali við fréttavefinn E! „Justin og  Elton hafa rætt málið vel og lengi og Justin leggur áherslu á góða samvinnu hans og væntanlegs leikstjóra, þeir tveir verði að ná vel saman. Okkur liggur ekkert á, við tökum okkur þann tíma sem þarf til að finna rétta aðilann í verkið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Mistök að tjá sig um ástamálin

John Mayer.
Í gær, 23:38 John Mayer sér eftir ummælum sínum um Jennifer Aniston og Britney Spears.  Meira »

Laðast að leikkonu

Johnny Depp.
Í gær, 20:44 Johnny Depp á í nánu sambandi við mótleikkonu sína Amber Heard.  Meira »

Stórvarasöm á golfvellinum

Britney Spears.
Í gær, 21:42 Britney Spears æfir sveifluna af kappi þannig að nærstaddir eiga fótum sínum fjör að launa.  Meira »

Taka upp atriði fyrir Star Trek 2 á Íslandi

J. J. Abrams og Chris Pine við tökur á Star Trek árið 2009.
Í gær, 16:02 Staðfest hefur verið að tökulið við Star Trek 2, sem frumsýna á árið 2013, mun koma hingað til lands að taka upp nokkur atriði en um það hafa verið uppi nokkrar getgátur. Star Trek, í leikstjórn J. J. Abrams, naut talsverðra vinsælda þegar hún var sýnd árið 2009. Meira »

finnur.is