Veröld/Fólk
| mbl
| 23.2.2012
| 15:29
Valdi bleik barnaföt
Jessica Simpson á von á sínu fyrsta barni í mars með unnusta sínum, Eric Johnson, og nú virðist allt benda til þess að hún gangi með stelpu.
Simpson skrapp ásamt móður sinni í verslunarferð í miðborg Los Angeles á dögunum og stöldruðu þær lengi við í versluninni Bel Bambini boutique. Skoðaði söngkonan eingöngu bleik föt og gekk út klyfjuð innkaupapokum, að því er haft er eftir heimildamanni tímaritsins People.
Poppstjarnan lýsti því yfir í blaðinu Us Weekly skömmu fyrir jól að hún væri byrjuð að hugsa fyrir brúðkaupinu en hún ætlaði þó ekki að ganga upp að altarinu fyrr en eftir að barnið væri fætt.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Dorrit mætir í skírn sænsku prinsessunnar
- Leikstjórar túlka tónlist Sigur Rósar
- Tekjur Avengers yfir milljarður dala
- Þarf að komast í meðferð
- Gibb „risi í tónlistarheiminum“
- Grét uppi á sviði
- Tólf stunda langur gjörningur sýndur
- Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni
- Sýning á verkum Dieters Roths
- Robin Gibb látinn









