Veröld/Fólk
| mbl
| 10.5.2012
| 19:42
Lofar fjörugri MTV-kvikmyndahátíð
Russell Brand hefur tekið að sér að vera aðalkynnir á MTV-kvikmyndahátíðinni sem fram fer í Gibson Amphitheatre í Los Angeles 3. júní. Gamanleikarinn lofar góðri skemmtun og segir að hátíðin muni slá út metsölukvikmyndina Avengers hvað varðar spennu.
Brand starfaði áður sem kynnir hjá MTV í Bretlandi og hefur tvívegis verið í hlutverki kynnis á MTV-myndbandahátíðinni, þar sem hann sló í bæði skipti í gegn.
Aðalframleiðandi kvikmyndahátíðarinnar, Jesse Ignjatovic, er ekki í nokkrum vafa um að breski háðfuglinn muni með hárbeittum athugasemdum sínum og kímnigáfu ná að skapa ógleymanlega kvöldstund, að því er fram kemur í tímaritinu People.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





