Álfagarðurinn í Hellisgerði í Hafnarfirði hefur gefið út bókina Hvað þarf til að sjá álf? eftir álfinn Fróða sem býr í Hellisgerði.
Í bókinni eru myndir eftir Ragnhildi Jónsdóttur sjáanda, sem skráði bókina eftir Fróða. Í kvöld kl. 20 mun Ragnhildur kynna álfinn og lesa upp úr bók hans við Álfagarðinn.