Cruise með fjölskylduna á Íslandi

Leikarinn Tom Cruise veitti verðlaununum viðtöku í New York sl. …
Leikarinn Tom Cruise veitti verðlaununum viðtöku í New York sl. þriðjudag. AFP

Bandaríski leikarinn Tom Cruise og fjölskylda hans verða á Íslandi um helgina, en líkt og fram hefur komið verður nýjasta kvikmynd Cruise, sem nefnist Oblivion, tekin upp hér á landi.

Friars Club í New York afhenti Cruise Entertainment Icon verðlaun í fyrradag. Eftir athöfnina sagði Cruise í samtali við Washington Post að hann myndi kynna sér tökustaði á Íslandi á morgun og á laugardag. Á sunnudag muni fjölskyldan svo taka því rólega, en þá er feðradagurinn haldinn hátíðlegur í Bandaríkjunum.

Ekki liggur fyrir hvort leikarinn sé þegar kominn til landsins.

Fram hefur komið að Oblivion verði m.a. tekin upp á Jökulheimaleið, sunnan við Drekavatn þar sem leikmynd hafi verið komið upp, að því er segir á dfs.is. DV segist hafa heimildir fyrir því að tökur á kvikmyndinni eigi að hefjast í Hrossaborgum í Mývatnssveit á mánudag.


mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson