Í kvöld kl. 20 verða sýndar fjórar íslenskar hjólabrettamyndir í Bíó Paradís í samstarfi við Brettafélag Reykjavíkur.
Í þeim má sjá brettafólk leika listir sínar í Reykjavík. Myndirnar heita Brak & brestir (2011), Klippt & skorið (2010), Allt & ekkert (2004) og Heimabrugg (2011). Þá verða einnig sýnd brot úr væntanlegum myndum.