Kris Humphries á von á barni með fyrrverandi unnustu sinni, Mylu Sinanaj. Fréttirnar koma á versta tíma fyrir körfuboltakappann, sem enn er kvæntur veruleikastjörnunni Kim Kardashian og stendur skilnaðardeila þeirra nú sem hæst.
Hjónaband Humphries og Kardashian entist aðeins í 72 daga en þau skildu með látum síðastliðið haust. Í kjölfarið átti körfuboltastjarnan í nokkurra mánaða ástarsambandi við Sinanaj en því lauk í vor.
Hún hefur nú tjáð vinum sínum að hún sé ófrísk að barni Humphries og sé komin þrjá mánuði á leið, að því er haft er eftir heimildamanni fréttavefjarins TMZ.