Japanskur maður er elsti maður heims, 115 ára gamall. Þetta er annað árið í röð sem Jiroemon Kimura fær þennan titil í heimsmetabók Guinness. Hann fæddist sumsé fyrir aldamótin. Þarsíðustu.
Kimura er fæddur í apríl árið 1897 og hefur því verið uppi á þremur öldum. Ef hann verður enn á lífi 27. desember, verður hann elsti maður sem nokkru sinni hefur lifað, svo vitað sé með vissu, að því er fram kemur í frétt BBC.
Sá karl sem staðfest er að hefur náð hæstum aldri er danskættaði Bandaríkjamaðurinn Christian Mortensen. Hann varð 115 ára og 252 daga gamall.