Burt Reynolds lagður inn á sjúkrahús

Burt Reynolds
Burt Reynolds Af vef leikarans

Bandaríski leikarinn Burt Reynolds var í vikunni lagður inn á sjúkrahús í Flórída vegna mjög slæmrar flensu.

Var hann lagður inn á gjörgæsludeild vegna ofþornunar vegna flensunnar en samkvæmt upplýsingum sem bárust nú í kvöld er hitinn að lækka og líklegt að hann verði útskrifaður af gjörgæslu í kvöld og fluttur á almenna deild.

Hefur vefur E! News eftir upplýsingafulltrúa Reynolds að hann sé við betri heilsu og vel sé hugsað um leikarann og skegg hans á sjúkrahúsinu.

Reynolds, sem er 76 ára að aldri, hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum í gegnum tíðina, meðal annars í Smokey and the Bandit.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant