Lögin tvö sem keppa til úrslita um það að verða framlag Íslendinga í Evróvisjón í Svíþjóð í maí eru „Ég á líf“ í flutningi Eyþórs Inga Gunnlaugssonar og „Ég syng!“ sem sungið er af Unni Eggertsdóttur.
Skorið verður úr um það hvort lagið ber sigur úr býtum í símakosningu sem hefst eftir að lögin tvö hafa verið flutt í annað sinn í kvöld.