Bieber sagt að haga sér
Justin Bieber er sagður hafa fengið tiltal frá útgáfufyrirtæki sínu á dögunum, þar sem honum var sagt að hafa sig hægan.
Bieber hefur sem kunnugt er dvalist í Lundúnum undanfarna daga þar sem hann kemur fram á nokkrum tónleikum. Hefur hann nýtt tímann til hins ýtrasta, ekki síst til að stunda skemmtanalífið þar í borg.
Reitti hann marga til reiði á dögunum, þar meðtalda forsvarsmenn útgáfufyrirtækisins, þegar hann mætti tveimur klukkustundum of seint á eigin tónleika í O2 tónleikahöllinni á mánudag. Baðst hann síðar afsökunar á seinkuninni og sagði við tæknilega örðugleika hafa verið að etja, sem fáir tóku til greina.
Neyðarfundur á Skype
„Eftir neyðarfund í Bandaríkjunum, átti Justin Skype-fund með útgefendum sínum, sem sögðu honum til syndanna,“ hefur dagblaðið Daily Mirror eftir ónafngreindum heimildamanni sínum.
Segir sagan að útgefendurnir hafi lagt hart að hinum 19 ára söngvara að taka sig saman í andlitinu og fara aftur að haga sér. Ráðlögðu þeir honum að róa sig og draga aðeins úr útstáelsinu. Samkvæmt heimildamanni Mirror á söngvarinn að hafa tekið vel í beiðni þeirra og lofað bót og betrun.
Tók til varna á Twitter
Eftir tiltalið virðist Bieber hafa farið beint á Twitter þar sem hann bar hönd fyrir höfuð sé.
Vændi hann fjölmiðla þar um óréttmæta gagnrýni og fréttaflutning undanfarna daga, í því skyni einu að selja blöð. Bætti hann við að þrátt fyrir að gera sér grein fyrir að þurfa að sæta umtali, vildi hann fólk dæmdi hann fremur af tónlist hans og verkum fremur en óréttmætum sögusögnum.




