Bieber örmagna á sviði (myndskeið)

Bieber setti þessa mynd af sér á sjúkrahúsinu á Twitter og sagðist vera að hlusta ... stækka

Bieber setti þessa mynd af sér á sjúkrahúsinu á Twitter og sagðist vera að hlusta á Janis Joplin.

Justin Bieber örmagnaðist á tónleikum í gærkvöldi og þurftu bráðaliðar að gefa honum súrefni. Hér að neðan má sjá myndskeið af atvikinu.

Bieber kláraði tónleikana eftir að hafa fengið aðhlynningunni en var að þeim loknum fluttur á sjúkrahús.

Hann kvartaði undan sársauka í lungum en sagðist í dag vera á góðum batavegi og þakkaði dyggum aðdáendum fyrir batakveðjur.

Bieber er sem stendur á tónleikaferðalagi. Á mánudag mætti hann tveimur tímum of seint á tónleika í London. Hann segist stefna ótrauður að því að koma fram á tónleikum í kvöld.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda