Efaðist um sig fyrir „Hangover“
Bradley Cooper efaðist um að hann væri sá rétti í hlutverkið sem hann síðar hreppti í fyrstu Hangover - myndinni og gerði hann heimsfrægan.
„Ég held að umboðsmaðurinn minn hafi þurft að snúa upp á hendina á Todd [Phillips, leikstjóra] þennan dag til að hann hitti mig. Þrátt fyrir að við næðum vel saman sá ég að ég var ekki „maðurinn“ sem hann var að leita að,“ sagði leikarinn í viðtali við Femalefirst-vefinn nú nýverið. Segir hann ljóst að Phillips hafi í fyrstu ekki viljað taka áhættuna á að ráða þrjá lítt þekkta leikara í hlutverk þríeykisins sem síðar varð svo vinsælt. Þekktari leikarar hafi hins vegar ekki viljað vera með.
Það kom Cooper því verulega á óvart þegar leikstjórinn hringdi til að láta hann vita að hann væri ráðinn. Þekktari vinir hans hafi hins vegar ekkert skilið í honum að taka að sér hlutverk í mynd með þessu heiti.
„Leikarar eru sérstakur þjóðflokkur,“ segir hinn 38 ára hjartaknúsari. „Það er heiður að vera hluti af þessum iðnaði en ég er líka þakklátur fyrir að vera ekki hinn hefðbundni leikari, en það er ég alls ekki,“ bætti hann við.





