Holly Madison orðin móðir

Holly Madison hefur eignast dóttur. stækka

Holly Madison hefur eignast dóttur. AFP

Fyrrum Playboy-fyrirsætan Holly Madison eignaðist dóttur á þriðjudag. Er hún fyrsta barn hennar og unnustans, tónleikahaldarans Pasquale Rotella.

Það virðist langt síðan Holly var ein af ástkonum Playboy-konungsins Hugh Hefner og kom reglulega fram í þáttunum Girls Nex Door, um lífið á Playboy-setrinu. Hin 33 ára fyrrum fyrirsæta hefur í seinni tíð einkum einbeitt sér að frama sínum sem leikkona.

Samkvæmt Twitter hafa hinir nýbökuðu foreldrar ekki enn valið nafn á stúlkuna en eru yfir sig hamingjusamir með hana. Vonast Holly til að ummönnum hunda hennar komi henni til góða þegar kemur að barnauppeldinu. „Þú getur auðvitað ekki borið saman barn og gæludýr,“ sagði hún í viðtali við Femalefirst vefinn fyrir nokkru. Vonaðist hún engu að síður til að ummönnun og uppeldi dýranna kæmu í góðar þarfir.

Holly ófrísk í desember síðastliðnum.

Holly ófrísk í desember síðastliðnum. AFP

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda